Þú ert hér: > Íslenska > Beluga

Beluga

Beluga er umhverfis- og vottunarfyrirtæki sem sérhæfir sig í að aðstoða fyrirtæki, stofnanir og einstaklinga í umhverfismálum. Í fyrstu verður þó megináhersla lögð á fyrirtæki og stofnanir.

Markmið með stofnun Beluga er að fá sem flesta aðila, stóra sem smáa til að mynda sér virka og viðurkennda umhverfisstefnu og/eða byggja upp umhverfisstjórnunarkerfi. Jafnframt mun Beluga taka að sér að sjá um mat á umhverfisáhrifum sem og að aðstoða sína viðskiptavini við að kynna sig og sínar stefnur á veraldarvefnum.

Íslendingar eru vel upplýstir og er því að mati forsvarsmanna Beluga tilvalið að koma á víðtækri umhverfisvakningu hérlendis enda eitt af markmiðunum með stofnun þess að Íslendingar verði leiðandi þjóðfélag í umhverfismálum og öðrum þjóðum til fyrirmyndar í þeim efnum. Hafa starfsmenn Beluga víðtæka þekkingu og fjölbreytta reynslu sem mun nýtast öðrum vel við þennan mjög svo spennandi málaflokk.

Nafnið Beluga eða hvíti hvalurinn (mjaldur) er heiti á hvalategund sem lifir á norðurhveli jarðar og á undir högg að sækja fyrst og fremst vegna mengunar af manna völdum. Fyrirtæki og stofnanir sem taka upp viðurkennda umhverfisstefnu og/eða móta sér viðurkennt umhverfisstjórnunarkerfi, fá rétt til að nota tilheyrandi merki sem sýnir að þau hafa staðist úttekt og kröfur Beluga. Jafnframt verða þau kynnt sérstaklega, meðal annars á heimasíðu Beluga.

Það má með sanni segja að höfuðstöðvar Beluga séu heimasíðan og hvetjum við áhugasama til að senda tölvupóst hafi þeir áhuga á að mynda sér umhverfisstefnu og/eða umhverfisstjórnunarkerfi og leggja þar með sitt lóð á vogarskálarnar. Það má að að lokum geta þess að nú þegar hafa nokkur fyrirtæki sóst eftir þjónustu Beluga en fyrstu 30 fyrirtækin fá sérstakan kynningarafslátt.

Ályktun Umhverfisráðs Beluga

Kynning á Beluga (58,5KB wordskjal)