|
Umhverfis- öryggis- og gæðastjórnunarkerfi Beluga 
Umhverfis- öryggis- og gæðastjórnunarmál tengjast öll með beinum eða óbeinum hætti. Umhverfis- öryggis- og gæðastjórnunarkerfi BELUGA er sérstakt að því leiti að það tekur á öllum þessum þáttum í einu og sama og kerfinu. Formið er einfalt og skilvirkt og ætti að henta hvaða tegund atvinnustarfsemi sem er. Gert er ráð fyrir að þau fyrirtæki, sem vinna eftir þessari forskrift, hafi sett sér umhverfisstefnu sem uppfyllir kröfur BELUGA. Ferlinu má skipta í einn yfirkafla og þrjá undirkafla, hver um sitt svið.
Uppbygging kerfisins
Í yfirkaflanum (kafla 1) er lýsing á uppbyggingu kerfisins og hvernig ber að vinna hvern áfanga. Farið er yfir grundvallar hugsun kerfisins og samtenginu sviðana.
Í undirköflunum þremur sem á eftir fylgja er meginhugsunin útfærð fyrir hvert svið. Fylgt er sama vinnuferli hvort sem í hlut eiga umhverfismál (kafli 2), öryggismál (kafli 3) eða gæðamál (kafli 4). Vinnan við hvert svið og hvern áfanga getur tekið mislangan tíma allt eftir eðli og umfangi fyrirtækja og mikilvægi hvers sviðs fyrir starfsemi fyrirtækisins.
Markmiðasetning og eftirfylgni
Lokapunkturinn í uppsetningunni er að setja saman gæðahandbók fyrir fyrirtækið. Gæðahandbók er samantekt yfir öll helstu atriði sem varða umhverfis- öryggis- og gæðamál. Í henni skulu stefnur fyrirtækisins vera ásamt markmiðum og öðrum tengdum hlutum. Bókin á að vera í lausblaðaformi þannig að auðvelt sé að úrelda eldri upplýsingar og bæta við nýjum eftir því sem þörf er á. Gæðahandbók skal afhenda öllum starfsmönnum fyrirtækisins og kapp lagt á að nýir starfsmenn fái hana í hendur þegar við innsetningu í starf.
Í framhaldi munu starfsmenn Beluga gera úttekt á starfsemi fyrirtækisins sem og á uppsetningu og framkvæmd stjórnunarkerfisins. Veitt eru stig fyrir hvern þann þátt sem fyrirtækið nær að uppfylla. Nái fyrirtæki 90% stigaskori eða meira á hverju sviði fyrir sig stenst fyrirtækið úttekt og öðlast þar með rétt til að nota gæðamerki Beluga.
Til að fyrirtæki geti öðlast framhaldsvottun þarf það að ná 6. áfanga (endurskoðun) á hverju sviði fyrir sig og að auki þarf það að hafa viðurkenda umhverfisstefnu, halda grænt bókhald og halda starfsmannanámskeið með reglubundnum hætti um þau málefni sem skipta það og starfsmenn þess mestu máli.
I Stjórnunarkerfi – uppbygging og áfangalýsing
|