Þú ert hér: > Íslenska > Umhverfismat

Umhverfismat

Starfsmenn Beluga geta tekið að sér mat á umhverfisáhrifum og er Úlfur Björnsson sérfræðingur á því sviði. Úlfur hefur unnið við mat á umhverfisáhrifum á vegum Landgræðslu Ríkisins í 5 ár og hefur því mikla reynslu og þekkingu á þessu sviði. Lowana Veal er líka sérhæfð á þessu sviði. En hvað felst í mati á umhverfisáhrifum? Hér eru frekara upplýsingar. 

 

Saga

 

Lögin um mat á umhverfisáhrifum nr. 106/2000 eru komin af evrópskri tilskipun nr. 97/11/EC sem áður voru nr. 63/1993 og eiga rætur að rekja til tilskipunar nr. 85/337/EEC. En lögin hafa verið breytt, og nú spila önnur lög inn í matsferli, skipulags- og byggingarlög, nr. 73/1997, en bæði öðlast gildi 1. október 2005. Reyndar hafa skipulags- og byggingarlög verið breytt líka. Einnig hefur skipulags- og byggingarlögunum verið breytt. Reglugerð nr. 1123/2005  var sett í kjölfar laganna. Reglugerðin og lögin eru svipuð að mörgu leyti en reglugerðin skilgreinir m.a. nánari framsetningu matsáætlunar, matsskýrslu og gagna ásamt aðgangi almennings að gögnum. 

 

Hlutverk Skipulagsstofnunar  

 

Sumar framkvæmdir skulu ávallt háðar mati á umhverfisáhrifum, samkvæmt 1. viðauka laga 106/2000, aðrar aðeins þegar þær geta haft umtalsverð áhrif í för með sér vegna umfangs, eðlis eða staðsetningar sbr. 2. og 3. viðauka laganna. Stofnunin gefur út leiðbeiningar sem nýtast við mat á umhverfisáhrifum framkvæmda og umhverfismats áætlana ásamt því að annast formlega kynningu frummatsskýrslu framkvæmdaaðila til almennings og áliti stofnunarinnar um mat á umhverfisáhrifum framkvæmda.  

 

Innihald matsskýrslu á umhverfisáhrifum 

Samkvæmt reglugerðinni skulu eftirfarandi atriði koma fram í frummatskýrslu eftir því sem við á: 

 

 

1.  Upplýsingar um framkvæmd og starfssemi sem henni fylgir, einkum:

 

·     lýsing á framkvæmd, hönnun hennar, afmörkun og umfangi, áfangaskiptingu ef við á, fyrirhugaðri staðsetningu og landrýmisþörf á framkvæmda- og rekstrartíma,

·     upplýsingar um tilgang framkvæmdar, hver er framkvæmdaraðili og upplýsingar um áætlaðan framkvæmdakostnað, þ.e. ef hann fellur ekki undir viðskiptaleynd,

·     upplýsingar um matsskyldu framkvæmdar, með vísan til viðeigandi liða í 1. eða 2. viðauka,

·     lýsing á helstu framleiðsluferlum og upplýsingar um nýtingu náttúruauðlinda, svo sem jarðefna, vatns, orku, annarra hráefna, og mannaflaþörf á framkvæmda- og rekstrartíma,

·     áætlun um losun (mengun vatns, lofts og jarðvegs, hávaða, titring, ljós, hita, geislun o.s.frv.) og um tegund og magn úrgangs,

·     upplýsingar um framkvæmdir á vegum annarra aðila sem eru forsenda hinnar fyrirhuguðu framkvæmdar,

·     upplýsingar um hvaða leyfum framkvæmd og starfsemi, sem henni fylgir, er háð ásamt upplýsingum um stöðu starfsleyfisundirbúnings vegna starfsleyfisskyldra framkvæmda,

·     yfirlit yfir valkosti sem gerð er grein fyrir í frummatsskýrslu, svo sem aðra kosti varðandi tæknilega útfærslu framkvæmdar eða starfssemi, aðra staðarvalskosti eða núll-kost, þ.e. að aðhafast ekkert,

·     upplýsingar um áætlaðan framkvæmda- og rekstrartíma.


 

2. Upplýsingar um framkvæmdasvæði, svo sem:

 

·     uppdráttur af fyrirhugaðri staðsetningu framkvæmdar og einnig uppdráttur af öðrum staðarvalskostum,

·     uppdráttur af líklegu áhrifasvæði framkvæmdar,

·     lýsing á framkvæmdasvæði og áætluðu áhrifasvæði fyrirhugaðrar framkvæmdar, svo sem landslagi, gróðurfari, byggð og landnotkun; fram skal koma hvort svæðið, að hluta eða heild, nýtur verndar eða hvort um það gilda aðrar kvaðir eða takmarkanir á landnotkun, svo sem vegna náttúruvár,

·     upplýsingar um aðrar fyrirhugaðar framkvæmdir á svæðinu, liggi þær fyrir,

·     upplýsingar um stöðu skipulagsmála á og nærri framkvæmdasvæði, hvort fyrirhuguð framkvæmd samræmist gildandi skipulagsáætlunum og hvernig fyrirhuguð framkvæmd tengist alþjóðasamningum og skuldbindingum.

 

 

3. Mat á umhverfisáhrifum. Þar komi fram:

 

·     lýsing á því hvaða þættir framkvæmdar og starfsemi, sem henni fylgir, eru taldir geta valdið umhverfisáhrifum, svo sem stærð og gerð mannvirkja, framleiðsluferlar, magn og gerð mengunarefna og hljóðstig frá starfsemi,

·     lýsing á þeim þáttum umhverfisins sem taldir eru geta orðið fyrir áhrifum af fyrirhugaðri framkvæmd og starfsemi sem henni fylgir,

·     lýsing á þeirri aðferðarfræði sem beitt hefur verið til að segja fyrir um áhrif framkvæmdarinnar á umhverfið,

·     niðurstöður mats á umhverfisáhrifum, þ.e. mat á líklegum

·     umhverfisáhrifum framkvæmdar og áhrifum starfsemi, sem henni fylgir, á umhverfið og líffræðilega fjölbreytni vegna tilkomu hennar, nýtingar náttúruauðlinda, losunar mengunarefna, ónæðis og/eða úrgangs,

·     samanburður á umhverfisáhrifum þeirra kosta sem kynntir eru og rökstuðningur fyrir vali framkvæmdaraðila að teknu tilliti til umhverfisáhrifa,

·     lýsing á fyrirhuguðum mótvægisaðgerðum,

·     upplýsingar um þá erfiðleika, tæknilega annmarka eða skort á þekkingu sem framkvæmdaraðili kann að hafa staðið frammi fyrir við mat á umhverfisáhrifum,

·     tillaga að vöktunaráætlun.

·     flokkun umhverfisþátta, viðmið, einkenni og vægi umhverfisáhrifa á grundvelli leiðbeininga sem Skipulagsstofnun gefur út.

 

 

4. Upplýsingar um kynningu, álitsumleitan og samráð sem staðið hefur verið að af hálfu framkvæmdaraðila við mat á umhverfisáhrifum og upplýsingar um afstöðu þeirra aðila sem hafa tjáð sig um framkvæmdina, matsáætlun eða frummatsskýrslu á vinnslustigi.

 

 

5. Stutt og skýr samantekt um frummatsskýrslu og niðurstöður hennar.

Í mati á umhverfisáhrifum, er mikilvægt að taka tillit til áhrifa á samfélagið í viðkomandi sveitarfélögum eftir því sem við á, þ.e.a.s. ekki bara mannaflaþörf heldur einnig t.d. áhrif á fjölskyldur, þörf fyrir skóla, húsabyggingu o.s.frv.; menningarminjar og náttúruminjar; sjónmengunar; samgöngur og innri tengsl milli atriða.