Þú ert hér: > Íslenska > Einstaklingar

Einstaklingar

Flestum okkar eru ljós þau áhrif sem við nútímafólk höfum á umhverfið. Við erum vel upplýst, lesum blöð, hlustum á útvarp og horfum á sjónvarp þar sem fjallað er um hin ýmsu umhverfismál, mál sem við vitum að snertir okkur öll. Því miður er það svo að fæst temjum við okkur nýja siði þrátt fyrir að vera svona vel upplýst.

 

Ef þér finnst vera kominn tími til að gera eitthvað í málunum þá ert þú ein/einn af mörgum sem ert staðráðin/-inn í að gerast umhverfismeðvitaður borgari og hvetjum við þig til að lesa og samþykkja eftirfarandi samning. Samningur þessi er þér algjörlega að kostnaðarlausu og mun þess í stað spara þér peninga ásamt því að stuðla að vistvænna umhverfi.

 

Hægt er að prenta samninginn beint héðan af síðunni en einnig er hægt að fá samninginn hér að neðan á formi word skjals hér.

 

Einstaklingsmarkmið

 
Þessi markmið eru tilvalin til að byrja með og hvetjum við þig til að velja að lágmarki eitt markmið úr hverjum flokk og fjölga þeim svo eftir því sem þú treystir þér til. Við hvetjum þig jafnframt til að virkja þína nánustu til að gera slíkt hið sama því að það er von okkar og vissa að það verði almenn vakning í þessum málum. Þú getur líkt haft samband við Landvernd og verið meðlimur í „Vistvernd í verki”, hópi sem samtökin eru með. Ef þú vilt bæta einhverju við eða segja þína skoðun á þessari heimasíðu eða umhverfismálum almennt þá hvetjum við þig til að hafa samband.


Með grænni og góðri baráttukveðju,
forsvarsmenn Beluga.