Þú ert hér: > Íslenska > Einstaklingar > Einstaklingsmarkmið..

Einstaklingsmarkmið..

 

Undirritaður heitir því að leggja sitt að mörkum til að minnka hlut sinn í eftirfarandi umhverfisvandamálum sem valda dýrum, mönnum og öðrum lífverum skaða.

 

 

Endurnýting og endurvinnsla

 

Ég geri mér fulla grein fyrir ábyrgð minni á meðferð á sorpi og mun gera eftirfarandi til að tryggja að flokkun og endurvinnsla verði eðlilegur og sjálfsagður hlutur af minni hálfu.

 

(  )        Ég mun koma mér upp flokkunarkerfi fyrir pappír, fernur, gler, plast, spilliefni og lífrænan úrgang.

 

(  )        Ég mun nota báðar hliðar á þeim pappír sem ég nota í tölvuprentarann minn eða ljósritunarvélina.

 

(  )        Ég mun frekar gefa hluti en henda t.d. fötum, húsgögnum og þess háttar.

 

(  )        Ég mun ávallt farga skaðlegum efnum á viðeigandi hátt eins og olíu, rafgeymum, rafhlöðum ásamt hreinsi- og eiturefnum hvers konar.

 

 

Orkunotkun

 

Ég mun fylgjast vel með orkunotkun, draga úr henni eins og hægt er og nýta hana á sem hagkvæmasta máta.

 

(  )        Ég mun ekki nota rafmagn af óþörfu til að mynda með því að láta ljós loga í mannlausum vistarverum, á tölvum, sjónvörpum o.s.frv.

 

(  )        Ég mun kaupa sparneytnar rafmagnsvörur eins og perur og raftæki.

 

(  )        Ég mun koma í veg fyrir óþarfa orkuútstreymi til að mynda með því fylgjast með samspili ofna og opnanlegra faga (glugga) ásamt því að halda hitastigi innandyra ekki hærra að jafnaði en 20°.

 

 

Lífríkið

 

Ég mun beita mér fyrir því að fjölbreytni lífríkisins haldist og efla það eins og ég hef möguleika á.

 

(  )        Ég mun taka virkan þátt í náttúruvernd og leitast við að kaupa vöru og þjónustu af fyrirtækjum og aðilum sem hafa skýra stefnu í þessum málum.

 

(  )        Ég mun ekki nota skordýra- eða illgresiseitur í mínum garði.

 

(  )        Ég mun leitast við að kaupa lífrænt ræktaðar matvörur bæði til styrkja umhverfisvernd en ekki síst fyrir heilsu mína og minna nánustu.

 

 

Loftmengun

 

Ég mun leggja mitt að mörkum til að draga úr loftmengun sem hlýst beint af mínum völdum og vera öðrum til fyrirmyndar í þessum efnum.

 

(  )        Ég mun forðast stuttar bílferðir en ganga frekar, hjóla eða nota almenningssamgöngur.

 

(  )        Ég mun halda lausagangi bifreiða í algjöru lágmarki og forðast að láta bifreið ganga að óþörfu.

 

(  )        Ég mun velja mér eins eyðslugranna og umhverfisvæna bifreið og ég hef möguleika á.

 

(  )        Ég mun kaupa forhitara á bifreið mína sem gerir það að verkum að vél bifreiðarinnar fer heit í gang og mengar mun minna ásamt því að auka þægindi til muna.

 

Vatnið

 

Ég geri mér fulla grein fyrir að vatnið er dýrmætasta auðlind okkar og mun leggja mitt að mörkum til að það haldist m.a. með eftirfarandi.

 

(  )        Ég mun ekki láta vatnið renna meira en nauðsynlegt er t.d. með því að geyma vatn inní kæliskáp í stað þess að láta það renna ótæpilega þangað til það kólnar.

 

(  )        Ég mun ekki láta vatn renna á meðan ég bursta í mér tennurnar heldur skrúfa fyrir á meðan.

 

(  )        Ég mun koma í veg fyrir vatnsmengun með öllum ráðum t.d. að hella aldrei spilliefnum í niðurföll eða í jarðveginn.

 

(  )        Ég mun minnka notkun spilliefna til muna t.d. með að draga verulega úr notkun þvottaefnis og hreingerningaefna hvers konar.

 

(  )        Ég mun frekar kaupa þær efnavörur sem hafa umhverfismerki. 

 

 

 

 

 

 

Undirskrift: ____________________________________

Dagssetning:______________