Þú ert hér: > Umhverfisvæn fyrirtæki

Umhverfisvæn fyrirtæki

Í öðrum löndum, t.d. í Danmörku, hefur margt gerst varðandi úrbætur í umhverfismálum fyrirtækja og hvernig þau geta sparað orku, vatn o.s.fv. En ekki mikið hefur gerst hér á landi. En engu að síðu er það hægt. Þið getið:

·         Skoðað lýsingu og loftræstingu. Er það gamalt? Hægt er að fá ljósaperur sem spara mikla orku. Og er nauðsynlegt að hafa allan búnað, t.d. kaffivélar, kveikt á nóttunni og yfir helgi? Jafnvel tölvur á dvalarstillingu nota talsvert orku.

·         Reynið að stilla ljósritunarvélar svo hún prentar á báðum megin. Kaupið umhverfisvænan pappir og reynið að minnka notkun ljósritunarvéla og tölvuprentara. Það er algengt að í fyrirtækjum notar hver stafsmaður 60 kílo af pappir á ári.

·         Flokkið rusl.

·         Látið plöntur vaxa innanhús. Þær taka til sín 99% eiturefna. Bambus virkar gagnvart flestum efnum, gummí- og klífurplöntur gegn formaledhýði, og körfublóm gegn plasti og nýrri málningu.

·         Notið símafund ef hægt er, frekar en „venjulegan” fund.

·         Kaupið tæki s.s. uppþvottavélar sem eru sparneytin og umhverfisvæn. Leitið að merkinu „Energy Star” til að finna tækin með bestu orkunýtingu.

 

Fleira til að hugsa um:

·         Í stórmörkuðum eru hönnun lýsingar- og kælikerfa mikilvæg, ásamt hvernig þau eru notið. T.d. er hægt að setja tímastillingu á gosdrykkjarkæli og lok á kæli- og frystiskápa sem geta minnkað orkunotkun verulega. Verið viss að þessir skápar eru lokaðir um nóttina.

·         Fartölva með flatskjá notar bara 16-25% af þeirra orku sem borðtölva með túbuskjá notar.

·         Er hægt að nota reiðhjól í stað bíls til að spreppa á milli staða í vinnunni? Eða að nota sparneytna bíla eða metanbíla? Og láta kennslu fara fram í vistakstri?

·         Gott er að hvetja starfsfólk að nota strætó til að komast í vinnu. Hægt er að niðurgreiða kostnað græna kortsins.

 

Kíktu á The Climate Group fyrir fleira dæmi um umhverfisvænar aðgerðir fyrirtækja.