Þú ert hér: > Íslenska > Umhverfisstefnur
Umhverfisstefnur
|
Umhverfisvottun Beluga
Beluga hvetur öll fyrirtæki til að koma koma sér upp metnaðarfullri og vottunarhæfri umhverfisstefnu og setja sér árlega markmið sem miða að úrbótum í þessum mikilvæga málaflokki. Árlegar úttektir fara fram á öllum þeim fyrirtækjum sem náð hafa vottun til að tryggja að þau uppfylli tilsetta staðla og séu að vinna að stöðugum úrbótum. Aðilar sem ná því að fá umhverfisstefnu sína vottaða fá leyfi til að nota umhverfismerki Beluga sem sést hér til hægri á síðunni, svo fremi sem þeir standast úttekt og séu markvisst að vinna að settum markmiðum í umhverfismálum.
Beluga hefur nú þegar hjálpað nokkrum fyrirtækjum við að setja fram virka umhverfisstefnu. Sjá hérna að neðan meiri upplýsingar um fyrirtæki sem hafa umhverfisvottun Beluga.
Eftir fyrirtæki, stofnun eða samtök hafa fengið umhverfisvottun frá Beluga er hægt að taka enn stærra skref og vinna eftir umhverfis- öryggis- og gæðastjórnunarkerfi Beluga.
Beluga getur einnig aðstoðað þig og fjölskyldu þína við að setja fram umhverfisstefnu. Farðu inn á Umhverfismarkmið fyrir einstaklinga fyrir meiri upplýsingar.
Fylgir þitt fyrirtæki umhverfisstefnu?
Beluga býður öllum þeim fyrirtækjum sem hafa umhverfisstefnu að skrá sig hér.
Fyrirtæki sem hafa mótað sér umhverfisstefnu |
 Kröfur Beluga til umhverfisstefnu fyrirtækja og stofnana til þess að hún sé vottunarhæf

Umhverfis- öryggis- og gæðastjórnunarkerfi Beluga
|
Eftirfarandi fyrirtæki/sveitarfélög hafa náð Umhverfisstefnuvottun hjá Beluga og eru tekin út árlega af starfsmönnum Beluga. Við hvetjum þig lesandi góður til að beina þínum viðskiptum til þessara aðila:
Vélsmiðja Ingvars Guðna

Vélsmiðja Ingvars Guðna (VIG) er alhliða vélsmiðja sem framleiðir m.a. hlið, vegristar, gjafagrindur, lamir, rennubönd, hlið slár, handrið, hesthús innréttingar, hringgerði, hestagerði og margt fleira. VIG hefur frá upphafi lagt áherslu á þjónustu við bændur og verktaka en í raun veitir þjónustu við alla þá sem þurfa að láta smíða hvaðeina úr málmum.
Heimasíða VIG má lesa hér.
Umhverfisstefna VIG má lesa hér.
Yutong Eurobus
Kínversk fyrirtæki sem framleiðir rútur og strætisvagna, Yutong Eurobus, er að taka upp umhverfisvottun Beluga og síðan umhverfis-, öryggis- og gæðastefnu Beluga.
Árlega framleiðir félagið yfir 20.000 rútur en megináhersla er ekki lögð á magnið heldur skipta gæðin og áreiðanleikinn mestu máli. Yutong hefur unnið til fjölda verðlauna og viðurkenninga fyrir framleiðslu sína og hefur félagið m.a. unnið í þrígang titilinn “Coach Builder of the Year” í Asíu.
Fyrirtækið er með höfuðstöðvar í Dubai, miðlægan varahlutalager í Þýskalandi og þróunar og prófunaraðstöðu á Íslandi, þar sem það er tengt við fyrirtækið Tyrfingsson ehf. í Selfossi.
Heimasíða Yutong Eurobus (á ensku) má lesa hér.
Umhverfisstefnu Yutong Eurobus má lesa hér.
|
Sveitarfélagið Árborg
Árborg er sveitarfélag á Suðurlandi, vestan til í Flóanum. Selfoss, Eyrarbakki og Stokkseyri tilheyra sveitarfélaginu Árborg.
Sveitarfélagið Árborg hefur slitið öllu samstarfi við Beluga. Árborg hefur verið með umhverfisvottun Beluga í nokkur ár og hefur ríkt ánægja með samstarfið hjá báðum aðilum. Forsvarsmenn Árborgar ákváðu eftir síðasta fund að hætta samstarfi við Beluga.
Okkur þykir leitt að sveitarfélagið sé ekki lengur einn af meðlimum Beluga fjölskyldunnar en að sjálfsögðu óskum við sveitarfélaginu alls hins besta í framtíðinni og þökkum fyrir ánægjulegt samstarf. |

Umhverfisstefnu Árborgar má lesa hérna.
Heimasíðu Árborgar |
|
Guðmundur Tyrfingsson ehf
Guðmundur Tyrfingsson ehf er fyrsta fyrirtækið sem hefur fengið umhverfisstefnu sína vottaða af Beluga og þar með fengið leyfi til að nota vottunarmerki Beluga.
Fyrirtækið hefur ferðaskipulagningarleyfi og höfum við skipulagt fjöldan allan af ferðum bæði með innlenda sem og erlenda ferðamenn. Við aðstoðum við skipulagningu ferða og bjóðum upp á ýmsar vinsælar ferðir.
Nær allir okkar bílar eru yfirbyggðir og hannaðir hér á landi af okkar starfsmönnum. |


Heimasíða Guðmundar Tyrfingssonar ehf
Lestu um umhverfisstefnuna þeirra |
Kjúklingabúið Vor ehf
Kjúklingabúið Vor ehf er fyrsta fyrirtækið í landbúnaðargeiranum til að fá umhverfisstefnu sína vottaða.
Umhverfisstefnuna ásamt stefnumiðum og markmiðum er hægt að nálgast á vor@vor.is, en erlíka hægt að sjá hér .
|
Kajakferðir ehf
Kajakaferðir ehf. bjóða upp á nýstárlega möguleika til náttúruskoðunar. Róið er á kajökum um hin sérkennilegu lón einnar fegurstu fjöru sem Ísland á og vatnasvæðið vestan byggðarinnar á Stokkseyri.
við erum eina kajakaleigan á landinu sem notum eingöngu "Sit-on-top" kajaka, sem eru öruggustu kajakar sem völ er á og hafa á undanförnum árum náð miklum vinsældum t.d. í Bandaríkjunum og víðar. Þeir eru einnig notaðir við björgunarstörf erlendis.
|

Heimasiða Kajakferða Stokkseyri
Lestu umhverfisstefnuna þeirra |
|