|
Það var fyrir um 10.000 árum sem maðurinn hóf að yrkja jörðina og stunda búskap sem hefur óhjákvæmilega í för með sér rask af ýmsu tagi, hægt er að halda slíku raski í lágmarki en því miður hefur það ekki verið gert í nándar nærri öllum tilvikum.
Skógum er eytt og kóralrif eru notuð í byggingarefni en þá hverfa mikilvæg búsvæði þeirra dýra sem á svæðinu lifa. Miklu máli skiptir að halda eftir ósnortnu svæði og þá skiptir máli á hvaða stærðargráðu það er því betra er að hafa eitt stórt svæði en mörg lítil sem samanlagt myndu þó e.t.v. ná yfir sama flatarmál og stóra svæðið, þetta er vegna þess að margar tegundir, sérstaklega rándýr sem eru efst í fæðukeðjunni, þurfa stórt svæði til að hafa nóg til að bíta og brenna. Minni svæði eru jafnframt viðkvæmari fyrir frekari röskun og truflun m.a. frá húsdýrum sem gerir villtum dýrategundum erfiðara fyrir með fæðunám og fjölgun. |