Hvað gerir þú við gömlu fötin þín? Gefur þú þau systkinum þínum eða öðrum? Það er algjör óþarfi að henta þeim. Hér á landi eru nokkrar verslanir sem Rauði krossinn og Hjálpræðisherinn reka. Þessar verslanir selja gömul föt sem fyrrverandi eigendur vilja ekki eiga. Verslanirnar vilja gjarnan taka á móti fötum sem eru orðin of þröng eða lítil á þig og öll þau föt sem þig langar ekki lengur til að eiga. Engin vill samt götótt föt eða rifin föt en þau er hægt að nota í tuskur og bútasauma.
Ef einhver á þínu heimili kann að sauma getið þið breytt gömlum fötum t.d. buxum í stuttbuxur, kjólum í pils og margt fleira. Notaðu ímundunaraflið! Stundum er hægt að breyta rifnum rúmfötum og gömlum gardínum í flott föt.
Svo er tilvalið að nota gömul föt sem vinnuföt t.d. þegar þú þarft að mála, leika þér eða þegar þú vilt verða skítug(ur).
Þá sparar þú að sjálfsögðu fínu fötin þín og þau endast lengur.
Það er hægt að fara með gömul föt á endurvinnslustöð. Þar er sérstakur gámur fyrir föt. Eitthvað af þeim fötum er svo sent erlendis til að hjálpa fátæka fólkinu. Önnur eru seld hér á landi og peningarnir notaðir til góðgerðamála. Gömul föt komast oft í tísku eins og sjá má í dag þegar meira að segja nýjar gallabuxur eru framleiddar og seldar eins og þær séu bæði gamlar og stlitnar.
Vissir þú að það er hægt að framleiða teppi úr gömlum fötunum?
Á Sólheimum eru búnar til flottar mottur úr gömlum gallabuxum, kannski þínum.
Vissir þú að það er hægt að búa til íþróttavelli og margt fleiru úr gömlum skóm?
Ekki henda gömlum fötum í ruslatunnuna! Bjargið þeim og endurnýtið þau.