Gífurlegt magn af lífrænum úrgangi myndast hjá okkur. Ef þú hendir matnum sem þú gast ekki klárað er hann orðinn líffrænn úrgangur. Ef þú hendir bananahýði þá er það líka líffrænn úrgangur.
En, hefur þú tekið eftir því hversu mikið af því sem þú hendir í ruslafötuna er í raun líffrænn úrgangur? Næst þegar þú hendir einhverju skalt þú hugsa um það. Vissir þú að þú getur keypt eða smíðað moltukassa þar sem þú getur sett allan lífrænan úrgang í og breytt honum í næringarríkan jarðveg? Þá þarf ekki að kaupa eins mikin áburð og þannig ert þú einnig búin að spara peninga.
Við sköpum gífurlega, ógeðslega mikið magn af rusli á hverjum einasta degi. Það er svo mikið rusl í heiminum, að við vitum hreinlega ekki hvað við getum gert við það.

Sumu er brennt en þá verða til margar eiturgufur sem hafa slæm áhrif á umhverfið okkar. Oft er það grafið í jörðina á ruslahaugum þannig að við sjáum það ekki en þar getur það skaðað dýrin sem búa í og á jörðinni. Líffrænn úrgangur er stór hluti af öllu því rusli sem er hent á hverjum degi. Ef við tökum líffrænan úrgang frá ruslinu verður minna rusl brennt eða grafið í jörðina okkar.